Gentlemen

föstudagur, apríl 01, 2005

Fyrsti fundur

Upphafsfundur gents var haldinn um daginn og var fögnuður meðal manna nokkuð góður. Við borðuðum virðulegt lambalæri og dreyptum á rauðvíni, eða að minnsta kosti nokkrir okkar. Fljótlega varð okkur þó ljóst að ekki voru nægar birgðir af rauðvíni fyrir alla og bjór var einnig á þrotum. Þá hófum við hnefan á loft og sórum þess heitan eið að aldrei skyldum við mæta framar edrú á þessi mannamót okkar. Þetta var því skráð niður í reglubækur okkar og héðan í frá má búast við miklum skarkala látum frá okkur.

Það sem hélt fögnuðinum gangandi var ps2 tölvan hans Sindra og kannski var það bara happ að ekki var meiri bjór við hönd því hiti leiksins gat orðið nokkuð góður. Næst verður tekið meira á því.

Sælar að sinni.